Línumaðurinn, Erlendur Guðmundsson hefur framlengt samningi sínum við Fram til tveggja ára. Þetta tilkynnir félagið á samfélagsmiðla síðu sinni nú rétt í þessu. ,,Við erum ákaflega ánægð með að okkar leikmenn virðast ekkert vilja fara. Það segir okkur að við erum að gera eitthvað rétt," segir í tilkynningunni frá Fram. Erlendur sem er uppalinn hjá Val gekk í raðir Fram fyrir síðasta tímabil og var því að klára sitt annað tímabil hjá Fram. Hann gekk í raðir Fram eftir hálfs árs dvöl hjá Víking. Erlendur varð Íslands- og bikarmeistari á sínu fyrsta tímabili með Fram og spilaði svo alla leiki í vetur hér á Íslandi sem og í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. ,,Við erum gífurlega ánægð með að halda í Erlend og óskum honum sem og FRAM til hamingju með framlenginguna," segir enn fremur í tilkynningunni. Erlendur var 8. markahæsti leikmaður Fram á tímabilinu með 46 mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.