
Framlenging hefur verið staðfest á samningum landsliðsþjálfaranna Snorra Steins Guðjónssonar og Arnórs Atlasonar við HSÍ, en þeir munu halda áfram að stýra íslenska karlalandsliðinu til ársins 2032. Nýju samningarnir, sem voru kynntir á blaðamannafundi í dag, marka skýra stefnu sambandsins um stöðugleika og langtímahugsun í uppbyggingu landsliðsins á komandi árum. Jón Halldórsson formaður HSÍ segir að samningaviðræðurnar hafi gengið vel frá fyrsta degi og viðræðurnar hafi tekið sinn tíma þar sem allir aðilar voru sammála um að vanda til verka. SNORRI OG ARNÓR SEMJA VIÐ HSÍ TIL ÁRSINS 2032 ,,Það var kannski ekki ártalið það er frekar það sem við höfum verið að átta okkur á er að það er þessi Ólympíuhringur og við vitum hversu stórir Ólympíuleikarnir eru og framhaldið hjá okkur á Íslandi. Við erum að fara halda HM 2031 og við þurfum að þróa okkur í áttinni að því, það er risastórt verkefni fyrir okkur. Í rauninni ákváðum við að tengja þennan samning við Ólympíuleikanna í Brisbane 2032," sagði Jón Halldórsson formaður HSÍ í viðtali við HSÍ í höfuðstöðvum Arion Banka í dag. ,,Samningaviðræðurnar tóku sinn tíma og það var í rauninni fínisering á samning hvernig við gátum sameinað sameiginlega sýn á hvernig verkefnið myndi fara fram sem tengist þessum faglega þætti. Það lá ljóst snemma í samningaviðræðunum að samningar myndu nást þannig við ákváðum að gefa okkur tíma og þetta var allt í góðu og það var vandað til verka. Við teljum okkur vera með heilsteyptan og góðan samning sem á að taka til allra þeirra hluta sem geta komið upp eins mikið og við getum séð fram í tímann." Handkastið greindi frá því í lok mars að Arnór Atlason væri á blaði hjá danska sambandinu um að gerast aðstoðarþjálfari Nikolej Jacobsen. Jón segir að það hafi ekki tafið samningaviðræðurnar. ,,Það kom upp fyrir tveimur vikum síðan að hann væri orðaður við danska landsliðið en þá vorum við komnir inn í samningaviðræðurnar og það var alltaf heill hugur hjá þeim sem voru við samningaborðið að halda því áfram. Það var ekkert sem ýtti undir það að þetta tæki lengri tíma að semja. Það voru allir með heilan hug á þessum samningaviðræðum. Við getum líka sagt það á móti og það er gott að við sjáum að þjálfarateymið okkar er sýndur áhugi og ég tala nú ekki frá svona stórri handboltaþjóð eins og Danmörku. Það undirstrikar hvað við erum með hæfileikaríkt og gott teymi hjá okkur." SNORRI STEINN RÆÐIR SEX ÁRA SAMNING SINN VIÐ HSÍ Sex ár er langur tími og er þetta lengsti samningur sem landsliðsþjálfari Íslands hefur gert frá upphafi. Er Jón ekkert hræddur um að þetta gæti kostað sambandið mikið ef illa fer á næstu stórmótum og gera þurfi breytingar? ,,Það er í rauninni vegferðin sem við trúum á. Ef þú lítur til baka og sérð þar sem ég hef verið að semja sama hvort það sé hjá Val eða einhversstaðar annarsstaðar þá trúi ég á langtímasamband og þetta hefur gengið vel. Það hefur verið mikil þróun á landsliðinu og síðan er þetta vegferð sem við förum í saman. Árangurinn er ekkert alltaf bara bein lína upp, hann getur verið upp og niður og við teljum okkur vera með hárrétt þjálfarateymi til að keyra þetta verkefni áfram. En á sama tíma eru klásúlur í þessum samningi, bæði fyrir þjálfarana og okkur HSÍ til að skoða allar þær mögulegar aðstæður sem gætu komið upp á sex árum," sagði Jón meðal annars í viðtalinu en viðtalið í heild sinni má sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.