Fer inn í þetta með opnum huga
Sævar Jónasson

HK-ingurinn, Haukur Ingi Hauksson gekk í dögunum í raðir Fram eftir að hafa verið í stóru hlutverki hjá sínu uppeldisfélagi undanfarin tvö tímabil í Olís-deildinni.

Haukur var markahæsti leikmaður HK á tímabilinu með 129 mörk en Ágúst Guðmundsson kom næstur með 127 mörk.

Nú tekur hinsvegar við nýr kafli hjá þessum unga og efnilega leikmanni í Úlfarsárdalnum hjá Fram.

,,Tilfinningin að vera komin í Fram er mjög góð. Þetta er nýtt umhverfi og ný áskorun. Ég er spenntur fyrir þessu og hlakka til að koma inn í hópinn og byrja almennilega."

En afhverju valdi hann að fara í Fram á þessum tímapunkti?

,,Mér leist vel á verkefnið. Ég fékk góða tilfinningu fyrir félaginu, liðinu og umgjörðinni. Svo fannst mér þetta vera skref sem gæti hentað mér vel á þessum tímapunkti."

Hann segir að það hafi komið til greina að vera áfram hjá HK.

,,Ég er mjög þakklátur fyrir tímann minn hjá HK og það var alls ekki auðveld ákvörðun að fara. En mér fannst þetta vera rétta skrefið fyrir mig núna."

,,Við spiluðum á kafla mjög vel, sérstaklega í úrslitakeppninni en svo áttum við ekki nógu góða kafla í vetur. Markmiðið var að fá fleiri stig en ég tek margt jákvætt með mér úr tímabilinu, en auðvitað vill maður alltaf gera betur."

En hvernig sérðu fyrir þér þitt hlutverk hjá Fram?

,,Ég ætla bara að koma inn, leggja mig fram og reyna að hjálpa liðinu eins mikið og ég get. En fyrst og fremst þarf maður bara að vinna sér inn sitt hlutverk. Það verður gaman að fá nýja áskorun og kynnast nýju liði. Ég fer bara inn í þetta með opnum huga og tilbúinn að leggja mitt af mörkum," sagði Haukur Ingi að lokum í samtali við Handkastið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top