
Íslendingaliðið, Kolstad í norsku úrvalsdeildinni mun hefja næsta tímabil í úrvalsdeild karla með tveggja stiga refsingu, samkvæmt ákvörðun norska handknattleikssambandsins sem birt var í gær. Refsingin er til komin vegna brota félagsins á skilyrðum keppnisleyfis í deildinni. Brotin tengjast fjárhagsstöðu félagsins og eiginfjárkröfum, en Kolstad hefur glímt við verulega fjárhagserfiðleika á yfirstandandi tímabili. Íslendingarnir Sigvaldi Björn Guðjónsson, Benedikt Gunnar Óskarsson og Sigurjón Guðmundsson eru allir á mála hjá félaginu. Sigvaldi Björn mun þó yfirgefa Kolstad í sumar og ganga til liðs við þýska félagið Hannover-Burgdorf. Þá verður Benedikt Gunnar Óskarsson samningslaus í sumar og allt bendir til þess að hann yfirgefi félagið einnig í sumar. Miklar breytingar hafa orðið á leikmannahópi Kolstad undanfarna mánuði og liðið misst hvert stór nafnið á fætur öðru. Þrátt fyrir það hefur liðið tryggt sér sæti í úrslitaeinvígi norsku úrvalsdeildarinnar. Þar mætir liðið öðru Íslendingaliði, Drammen og fer fyrsti leikurinn fram í Þrándheimi á laugardag. Með Drammen leikur Ísak Steinsson.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.