Eins og hreyfingin hafi ekki verið að óska eftir þessu
J.L.Long

Handknattleikssamband Íslands ákvað með stuttum fyrirvara að aflýsa Lokahófi HSÍ sem átti að fara síðastliðinn laugardag í Austurbæ. Ástæðan var dræm miðasala. Lokahóf HSÍ var auglýst í upphafi mars mánaðar og átti að endurvekja hinn vinsæla viðburð eftir nokkurra ára hlé.

Rætt var um ákvörðunina í nýjasta hlaðvarpsþætti Handkastsins þar sem Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari Vals var gestur.

LOKAHÓFI HSÍ AFLÝST VEGNA DRÆGRAR MIÐASÖLU

,,Auðvitað var þetta gaman á sínum tíma, ég segi það ekki. Það voru ágætis kyndingar í gangi þarna en því miður náðist ekki að manna þetta og eins og hreyfingin hafi ekki verið að óska eftir þessu," sagði Ágúst Jóhannsson sem hefur farið á þau nokkur lokahófin í gegnum tíðina.

ÍDA MARGRÉT OG ÍSAK ÓLI BEST Í GRILL66-DEILDUNUM

,,Kannski var enginn að biðja um að borga 13.990 kr. fyrir pinnamat,” bætti Arnar Daði Arnarsson við áður en Ágúst hélt áfram:

,,Það hefði kannski verið hægt að fara aðrar leiðir í þessu. Ég held að verðið hafi verið í rauninni of hátt og það hefði kannski mátt draga aðeins úr atriðum og slíku. Það hefði verið gaman að ýta þessu aftur af stað en hreyfingin tók ekki við þessu og þá er það bara þannig.”

ARNÓR SNÆR OG LOVÍSA BEST Í OLÍS-DEILDUNUM

,,Ég ætla vona að menn reyni aftur á næsta ári og komi aðeins öðruvísi að þessu. Miðað við Instagram þá virtust 3-4 lið hafa verið í sektarsjóðsferð erlendis um helgina, það þarf kannski að undirbúa þetta betur. 13.990 krónur er vel í lagt en það var líka flott dagskrá en ef við förum í þetta hvernig þetta var hérna í gamla daga þá var þetta bara trúnó og fyllerí og almenn stemning. Ég man aldrei hver var að spila á þessum lokahófum," sagði Stymmi Klippari en það var samhljómur í stúdíó-inu að það ætti að reyna keyra aftur á þetta á næsta ári.

,,Menn reyna kannski að breyta planinu fyrir næsta ár," sagði Ágúst Þór að lokum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top