Benedikt Gunnar Óskarsson varð á dögunum norskur meistari með félagsliði sínu Kolstad. Samningur hans við félagið rennur út í sumar. Benni hefur verið orðaður við heimkomu í Val í sumar og var Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari Vals spurður að því í nýjasta hlaðvarpsþætti Handkastsins þar sem Ágúst var gestur. LIGGUR LEIÐ BENNA ÓSKARS Á HLÍÐARENDA? ,,Það er ekkert klárt í því. Ég skal alveg viðurkenna það að ég hef heyrt í honum og eins og ég hef áður sagt, við heyrum í Völsurunum sem eru úti. Það er okkar plan, Arnór Snær kemur í fyrra og ég var búinn að heyra í honum í þónokkurn tíma áður en hann kom," sagði Ágúst meðal annars en viðurkenni að Valur hefur alveg hlerað Benna. ,,Hann er heiðarlegur með það að hann er að skoða sín mál. Hann stóð sig vel í Noregi og sérstaklega núna í úrslitaeinvíginu, þar var hann frábær. Hann er að skoða sína möguleika en ég er á bakinu á honum. Það kemur hinsvegar bara í ljós í róleg heitunum og hann fær þann tíma sem hann þarf." ,,Ég vona það Benna vegna að hann fái eitthvað spennandi úti. Hann er frábær leikmaður en ef hann fær ekkert spennandi úti þá eru dyrnar opnar fyrir hann í Val og það er spennandi tímabil hjá okkur að fara í Evrópudeildina og allt slíkt og hann veit af því. Það mun koma í ljós á næstu vikum," sagði þjálfari Vals, Ágúst Þór Jóhannsson að lokum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.