Línumaðurinn Jón Ómar Gíslason gæti verið á leið í atvinnumennsku samkvæmt heimildum Handkastsins. Samkvæmt heimildum Handkastsins hefur Jón Ómar fengið tilboð frá erlendu félagi sem hann er nú að íhuga. Jón Ómar gekk til liðs við Hauka fyrir síðasta tímabil eftir að hafa leikið með Gróttu. Á sínu fyrsta tímabili með Hafnarfjarðarliðinu varð hann bikarmeistari og átti þátt í góðu gengi liðsins. Eftir að tímabilinu lauk komust Jón Ómar og Haukar hins vegar að samkomulagi um að rifta samningi hans, sem gerði honum kleift að leita nýrra tækifæra. Á dögunum var Jón Ómar orðaður við Þór á Akureyri og samkvæmt heimildum Handkastsins átti hann í viðræðum við félagið. Nú virðist hins vegar sem möguleikinn á atvinnumennsku erlendis sé raunhæfur kostur og gæti því haft áhrif á næstu skref hans. Verði af félagaskiptunum verður það í fyrsta sinn sem Jón Ómar heldur utan til atvinnumennsku en Jón Ómar er uppalinn hjá Herði á Ísafirði.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.