Það kom mörgum í opna skjöldu fyrr í vetur þegar ungverska liðið Pick Szeged ákvað að rifta samningi sínum við sænska landsliðsmanninn Jim Gottfridsson. Jim Gottfridsson sagði alltaf að hann myndi leita réttar síns þar sem honum fannst á honum brotið með þessari riftun. Jim staðfesti nú rétt í þessu á Instagram síðu sinni að hann og Pick Szeged hefðu komist að samkomulagi um lokagreiðslu og að málinu væri nú lokið af beggja hálfu. Pick Szeged öxluðu ábyrgð og staðfestu að Jim hefði ávalt komið fram af mikilli virðingu og efnt alla þá þætti samningsins sem hann skrifaði undir og verið félaginu til sóma allan þann tíma sem hann var hjá þeim. Jim þakkaði fjölskyldu sinni, umboðsmanni, lögmanni og öllum aðdáendum fyrir stuðninginn á þessum erfiðu tímum og sagðist ekki hafa getað þetta án þeirra allra.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.