EHF hefur birt opinbert úrvalslið Evrópumóts U20 ára landsliða karla sem fram fór í Rúmeníu og lauk um síðustu helgi. Svíar eiga fimm fulltrúa í úrvalsliðinu en Ungverjar, Danir og Slóvenar eiga þar einnig fulltrúa. Liam Hultberg, leikmaður Ystads, var jafnframt valinn verðmætasti leikmaður mótsins (MVP). Ungverjar sem fögnuðu sigri á mótinu eftir æsispennandi úrslitaleik gegn Svíum sem réðst í framlengingu eiga tvo fulltrúa í úrvalsliðinu. Slóvenar unnu til bronsverðlauna eftir sigur á Dönum í leiknum um þriðja sætið. Íslenska liðið hafnaði í 13. sæti á mótinu eftir sigur á Rúmeníu í lokaleik sínum á mótinu. Hér má sjá úrvalslið mótsins:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.