Þýska handknattleikssambandið (DHB) hefur greint frá andláti fyrrverandi dómarans Matthias Brauer, sem lést 58 ára að aldri eftir erfið veikindi. Brauer hóf dómgæslu árið 1985 og var um árabil í fremstu röð þýskra handknattleiksdómara. Ásamt dómarafélaga sínum, Kay Holm, dæmdi hann yfir 830 leiki á vegum DHB áður en þeir lögðu flautuna á hilluna árið 2017. Eftir að virkum dómarferli lauk hélt Brauer áfram störfum fyrir þýskan handbolta sem eftirlitsmaður í Bundesligunni og leiðbeinandi fyrir unga dómara, meðal annars í 3. deildinni. Í tilkynningu DHB segir að með Brauer sé horfinn mikill leiðtogi og áhrifamaður innan þýskrar dómgæslu. „Alltof ótímabært fráfall Matthias Brauer er mikill missir á allan hátt. Hugur okkar er hjá fjölskyldu hans, aðstandendum og vinum á þessum erfiða tíma,“ sagði Jutta Ehrmann, yfirmaður dómaramála hjá DHB.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.