Er ekki týpan sem sendir leikmennina út á hlaupabraut
FEDERICO GAMBARINI / AFP

Þýsku meistararnir í SC Magdeburg eru byrjaðir undirbúning fyrir komandi tímabil eftir fimm vikna frí. Eins og eðlilegt þykir eru nokkrar breytingar á leikmannahópi liðsins frá síðasta tímabili.

Fyrirliðinn Christian O'Sullivan, markvörðurinn Sergey Hernández og hornamaðurinn Tim Hornke yfirgáfu félagið í sumar. Þjálfarinn Bennet Wiegert þarf því bæði að finna nýjan fyrirliða og koma saman nýju markvarðateymi.

O'Sullivan gekk til liðs við TBV Lemgo Lippe, Hernández hélt til Barcelona en Hornke lagði skóna á hilluna.

Magdeburg hefur hins vegar fengið til sín markvörðinn Dominik Kuzmanovic frá Gummersbach, Antonio Serradilla frá Stuttgart og Oskar Vind frá GOG. Wiegert telur að breytingarnar á leikmannahópnum komi á réttum tíma.

„Við settum saman þennan leikmannahóp vegna þess að við höfum ótakmarkaða trú á honum. Nú þurfum við að sýna að þessi sannfæring sé ekki aðeins til staðar hjá okkur heldur sjáist einnig inni á vellinum,“ sagði Bennet Wiegert við Sport Bild.

Mesta breytingin verður á markvarðarstöðunni þar sem Kuzmanovic tekur við af Hernández, sem hafði verið hjá félaginu í þrjú tímabil. Samkvæmt Sport Bild greiddi Magdeburg að minnsta kosti 500.000 evrur fyrir króatíska landsliðsmarkvörðinn. Upphæðin getur hækkað í 700.000 evrur með bónusum. Kuzmanovic mun mynda markvarðateymi með landa sínum, Matej Mandić.

„Við erum með tvo frábæra markverði og góða aldursdreifingu á stöðunni. Ef við nálgumst þetta rétt og vinnum vel með þeim geta þeir vonandi verið markvarðateymi okkar í mörg ár,“ sagði Wiegert.

Leikmenn Magdeburg þurfa hins vegar ekki að búast við því að hlaupaæfingar verði í aðalhlutverki í undirbúningnum.

„Ég er ekki týpan sem sendir leikmennina út á hlaupabraut. Við viljum vinna leiki inni í höllinni en ekki á hlaupabrautinni. Þess vegna förum við tiltölulega fljótt að vinna með boltann,“ sagði Wiegert.

Ein stærsta spurningin sem enn er ósvarað er hver taki við fyrirliðabandinu af O'Sullivan. Wiegert hefur hins vegar þegar ákveðið hver verður næsti fyrirliði liðsins en hefur ekki gefið það formlega út.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top