HSG Nordhorn-Lingen hefur nú sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar þess að Handknattleikssamband þýsku deildarinnar, HBL, hótaði félaginu sex stiga frádrætti á næsta tímabili. HBL tilkynnti í gær að félagið þyrfti að uppfylla þrjú skilyrði vegna alvarlegrar fjárhagsstöðu. Nordhorn þarf meðal annars að sýna fram á að hægt sé að brúa það lausafjárbil sem hefur verið greint í rekstrinum, skila mánaðarlega inn áætlunum um lausafé og rekstrarafkomu og sæta takmörkunum á launakostnaði. Þá hefur leyfisnefnd HBL tilkynnt að til standi að draga sex stig af Nordhorn-Lingen á tímabilinu 2026/27. Félagið fær þó tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri áður en endanleg ákvörðun verður tekin. Ákvörðun HBL byggir á því að „ekki óverulegt misræmi“ sé á milli þeirra upplýsinga sem félagið lagði fram í leyfisferlinu í vor og þeirrar fjárhagsstöðu sem nú liggur fyrir. Málið hefur því vakið upp spurningar um hvort félagið hafi veitt rangar eða villandi upplýsingar þegar það sótti um keppnisleyfi. Nordhorn-Lingen hefur nú brugðist við og segir félagið taka yfirlýsingu HBL alvarlega. „Við tökum núverandi yfirlýsingu Handknattleikssambands þýsku deildarinnar, HBL, alvarlega og viljum koma eftirfarandi á framfæri,“ segir í yfirlýsingu félagsins. „Við tökumst á við þessar aðstæður af fullri ábyrgð en fyrst og fremst með skýra sýn til framtíðar. HSG er áfram mikilvægur hornsteinn atvinnuíþrótta og samfélagsins á okkar svæði. Það skiptir okkur gríðarlega miklu máli að tryggja þessa starfsemi til framtíðar.“ Félagið segist jafnframt eiga í nánu og lausnamiðuðu samstarfi við leyfisnefnd HBL og vinna að því að uppfylla öll þau skilyrði sem sett hafa verið fram. „Við erum sannfærð um að við getum náð þessu markmiði saman með öllum samstarfsaðilum, stuðningsfólki og öðrum hagsmunaaðilum.“ Að lokum segir Nordhorn-Lingen að frekari upplýsingar um næstu skref verði kynntar með gagnsæjum hætti á næstunni. Framtíð félagsins í þýsku 2. deildinni er því enn óljós en næstu dagar gætu skipt miklu máli. Nordhorn þarf nú að bregðast við þeim kröfum sem HBL hefur sett fram og sannfæra leyfisnefndina um að félagið sé með reksturinn á réttri leið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.