Børge Lund er snúinn aftur til THW Kiel, 16 árum eftir að hann kvaddi félagið sem leikmaður. Børge Lund tók fyrr í sumar við stórliði THW Kiel eftir að hafa stýrt Elverum í heimalandi sínu, Noregi undanfarin tímabil. Norðmaðurinn lýsir endurkomunni sem heimkomu, en Kiel er í allt annarri stöðu en þegar hann var sjálfur á parketinu. „Mér líður eiginlega eins og ég sé kominn heim,“ sagði Børge Lund í samtali við SHZ. Hinn 47 ára Norðmaður lék með Kiel frá 2007 til 2010 og vann þýska meistaratitilinn öll þrjú tímabilin sem hann var hjá félaginu. Þá varð hann einnig tvisvar bikarmeistari og vann Meistaradeild Evrópu árið 2010. THW Kiel var á hápunkti félagsins á þessum árum en staðan er allt önnur í dag en í fyrsta skipti í 33 ár leikur liðið ekki í Evrópukeppni eftir slakt gengi á síðasta tímabili, en liðið endaði í 6.sæti deildarinnar. Lund lætur þó ekki erfiða stöðu félagsins hafa of mikil áhrif á sig. „Það eru nánast engin félög sem geta alltaf verið alveg í fremstu röð í Bundesliga,“ sagði Lund. Lund hefur ekið um Kiel og rifjað upp gamlar slóðir, götur og veitingastaði frá leikmannsárunum. Margt er þó enn eins og það var, en ein stór breyting hefur átt sér stað. Það er nýtt og glæsilegt æfinga- og afreksmiðstöð félagsins, sem var tekið í notkun árið 2019. „Leikmennirnir hafa hér frábærar aðstæður. Félagið getur í mun meira mæli stjórnað því sjálft hvenær æfingar fara fram og leikmennirnir fá því meðal annars meiri tíma til að jafna sig á milli æfinga,“ sagði Lund sem býr enn á hóteli í Kiel.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.