Fjölskyldan fann sig ekki í Póllandi
ANDRZEJ IWANCZUK / AFP

Norski landsliðsmarkvörðurinn, Torbjørn Bergerud segir að fjölskyldan hafi ekki náð að festa rætur í Póllandi og að það hafi haft mikil áhrif á ákvörðun hans um að yfirgefa Wisła Płock og ganga í raðir Fredericia í dönsku úrvalsdeildinni.

Félagaskipti norska landsliðsmarkvarðarins frá Wisła Płock til Fredericia HK gengu hratt fyrir sig en ákvörðunin snerist um meira en bara handbolta. Bergerud segir í samtali við Fredericia AVISEN að fjölskyldan hafi ekki fundið sig í Póllandi eftir fyrsta tímabilið hjá pólska stórliðinu.

„Ég og fjölskyldan mín kunnum ekki alveg við okkur þarna. Þetta snýst um menninguna og alla upplifunina. Munurinn varð einfaldlega of mikill fyrir okkur sem komum frá Skandinavíu og hversdagurinn var ekki sá besti,“ sagði Bergerud.

Þegar tækifæri gafst til að yfirgefa Wisła Płock var Fredericia fljótt á ferðinni. Bergerud skrifaði undir þriggja ára samning við danska félagið sem gildir til sumarsins 2029.

„Það hefur margt gerst og þetta hefur allt gerst mjög hratt. Allt í einu kom upp möguleiki á að komast frá Póllandi og Fredericia var fljótt komið að borðinu og tilbúið að hjálpa. Að lokum tókst þetta,“ sagði hann.

Bergerud þekkir danskan handbolta vel eftir að hafa leikið með TTH Holstebro og GOG. Með GOG varð hann danskur meistari árið 2022 og hlakkar hinn 32 ára gamli Norðmaður til að snúa aftur í dönsku deildina.

„Ég þekki deildina vel og hún verður bara betri og betri. Þetta er deild sem ég kann vel við mig í og mig langar að spila í,“ sagði Bergerud.

Hann bendir jafnframt á að Fredericia hafi áður leikið bæði í Meistaradeild Evrópu og Evrópudeildinni, sem sýni að félagið hafi sterkan grunn og möguleika á að þróast enn frekar. Þrátt fyrir að tímabilið sé ekki hafið telur Bergerud að Fredericia geti blandað sér í baráttuna um stóru titlana.

„Með þá leikmenn sem við höfum hér vitum við að við getum alveg náð góðum árangri," sagði Bergerud meðal annars. Guðmundur Þórður Guðmundsson stýrði Fredericia en var sagt upp störfum í upphafi síðasta tímabils eftir erfiða byrjun félagsins í dönsku úrvalsdeildinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top