Alfreð sér ákveðna líkingu með sjálfum sér og Hansi Flick
Sina Schuldt / AFP

Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Þýskalands í handbolta, líkir starfi sínu við þýska landsliðið við það sem Hansi Flick gerði á sínum tíma sem landsliðsþjálfari þýska knattspyrnulandsliðsins.

Hinn 66 ára gamli Íslendingur framlengdi á dögunum samning sinn við þýska handknattleikssambandið til loka Ólympíuleikanna árið 2028. Í viðtali við Sport Bild kemur hann með áhugaverðan samanburð á eigin starfi og núverandi þjálfara Barcelona í knattspyrnu.

„Sem landsliðsþjálfari gerði hann í raun það sama og ég. Hann yngdi liðið algjörlega upp og fékk mikla gagnrýni fyrir það þar sem liðið náði ekki árangri strax, sem er fullkomlega eðlilegt,“ sagði Alfreð.

(Josep LAGO / AFP)

Hansi Flick tók við þýska landsliðinu árið 2021 en lét af störfum árið 2023 eftir erfiða byrjun. Síðan þá hefur hann hins vegar stýrt Barcelona og Alfreð telur að hann hafi þar sýnt hversu hæfileikaríkur þjálfari hann er.

„Núna er hann líklega að skila besta þjálfarastarfinu sem nokkur þjálfari í heiminum hefur unnið á undanförnum árum,“ sagði Alfreð sem bendir sérstaklega á hugrekki Flicks til þess að gefa ungum leikmönnum tækifæri í stað þess að kaupa inn fjölda nýrra leikmanna.

„Hann hefur nánast ekki keypt neina leikmenn heldur í staðinn samþætt unga leikmenn úr akademíunni. Sem er frábært."

Þjálfararnir tveir hafa einnig persónuleg samskipti þvert á íþróttagreinar. „Hann fylgist með handbolta og við skrifumst á af og til,“ sagði Alfreð Gíslason.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top