Vandræði Nordhorn gæti bjargað Krefeld frá falli
Tom Weller /AFP

HSG Krefeld Niederrhein ætlar að vísa leyfismáli HSG Nordhorn-Lingen til gerðardóms þýsku deildasamtakanna HBL.

Krefeld féll úr 2. Bundesliga eftir að hafa endað í 17. sæti en telur að félagið hefði mögulega getað haldið sæti sínu í deildinni ef Nordhorn hefði ekki fengið keppnisleyfi.

Nordhorn fékk upphaflega skilyrðislaust keppnisleyfi fyrir næsta tímabil en staða félagsins hefur síðan tekið óvænta stefnu. HBL kallaði félagið á fund á dögunum vegna fjárhagslegra áhyggna og hefur nú sett hertar kröfur á Nordhorn.

Félagið þarf meðal annars að sýna fram á að það geti staðið undir lausafjárskorti og skila mánaðarlega inn fjárhagsáætlunum. Þá verða útgjöld til leikmannahópsins takmörkuð og nýjar fjárhagslegar skuldbindingar þurfa samþykki leyfisnefndar. Elmar Erlingsson er leikmaður Nordhorn-Lingen.

HBL hefur jafnframt varað við því að Nordhorn gæti byrjað næsta tímabil með sex mínusstig.

Krefeld hefur því fengið lögfræðing til liðs við sig og ætlar að fara með málið fyrir gerðardóm HBL.

„Áhyggjur okkar hafa því miður verið staðfestar. Við munum fara með málið fyrir gerðardóm HBL,“ sagði André Schicks, framkvæmdastjóri Krefeld.

HBL hefur sagt að verulegt misræmi sé á milli þeirra fjárhagsupplýsinga sem Nordhorn lagði fram í leyfisferlinu síðastliðið vor og þeirra upplýsinga sem nú liggja fyrir. Málið gæti því haft veruleg áhrif á fallbaráttuna og jafnvel ráðið því hvort Krefeld fái að halda sæti sínu í 2. Bundesliga.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top