Sigurjón og félagar neyddust til að afboða sig í æfingaleik
Andreas Gora / AFP

Ekkert verður úr fyrirhuguðum æfingaleik Sandefjord gegn Elverum sem átti að fara fram í kvöld í Ellingsrudhallen.

Ástæðan er sú að of margir leikmenn Sandefjord glíma við minniháttar meiðsli og vill félagið ekki taka neina óþarfa áhættu á þessum tímapunkti undirbúningsins.

„Við getum ekki tekið neina áhættu sem gæti haft alvarlegri afleiðingar síðar. Þetta eru sjaldnast alvarleg meiðsli, en það er nóg til þess að leikur gegn Elverum hentar okkur einfaldlega ekki núna. Því miður,“ sagði Marinko Kurtovic, þjálfari Sandefjord.

Markvörðurinn, Sigurjón Guðmundsson gekk nýverið til liðs við Sandefjord frá Kolstad. Sigurjón er því á sínu fyrsta undirbúningstímabili með liðinu fyrir komandi keppnistímabil í norsku úrvalsdeildinni og greinilegt að staðan á leikmannahópnum er ekki upp á marga fiska um þessar mundir.

Óljóst er hvort félögin muni finna nýjan tíma fyrir leikinn síðar á undirbúningstímabilinu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top