Þýska stórliðið SG Flensburg-Handewitt hefur tryggt sér tvo eftirsóttustu handknattleiksmenn Evrópu þegar portúgölsku bræðurnir Kiko Costa og Martim Costa ganga til liðs við félagið sumarið 2027. Bræðurnir hafa skrifað undir samninga sem gilda að minnsta kosti til ársins 2032. Með komu þeirra fær Flensburg ekki aðeins tvo af eftirsóttustu leikmönnum Evrópu heldur einnig tvo landsliðsmenn Portúgals sem hafa leikið saman um árabil hjá félagsliði og landsliði. „Koma Martim og Kiko er eitthvað alveg sérstakt fyrir okkur. Þrátt fyrir ungan aldur hafa þeir þegar sýnt fram á einstaka hæfileika sína. Þeir færa okkur kraft, sköpunargáfu og mikinn metnað. Í viðræðum okkar fundum við einnig strax að þeir passa afar vel inn í menningu félagsins. Við erum afar ánægð með að þeir hafi saman valið Flensburg og erum sannfærð um að þeir muni styrkja liðið bæði innan vallar sem utan,“ sagði framkvæmdastjórinn Holger Glandorf. Þjálfarinn Aleš Pajović tók í svipaðan streng. „Martim og Kiko eru meðal áhugaverðustu leikmanna sinnar kynslóðar. Þeir búa yfir miklum gæðum, frábærum leikskilningi og ástríðu fyrir leiknum. Þrátt fyrir ungan aldur hafa þeir þegar aflað sér dýrmætrar reynslu á allra hæsta alþjóðlega stigi. Auk þess eru þeir jarðbundnir og hungraðir í árangur, sem passar fullkomlega við okkar hugmyndafræði,“ sagði Pajović. Af virðingu við núverandi félag þeirra, Sporting CP, hefur Flensburg ákveðið að birta hvorki myndir né myndbönd af bræðrunum að svo stöddu. Félagið segist hins vegar hlakka til að taka á móti þeim fyrir tímabilið 2027/28. Landsliðsmaðurinn Arnar Freyr Arnarsson gekk í raðir félagsins í sumar og sumarið 2027, á sama tíma og Costa-bræðurnir mæta til leiks, mun landsliðsmaðurinn Viggó Kristjánsson einnig ganga til liðs við félagið frá HC Erlangen. Félagaskipti Viggós voru tilkynnt fyrr á þessu ári.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.