Yfir 11 þúsund áhorfendur sáu Bjarka Má í Japan
Instagram

Paris Saint-Germain, nýtt lið ladsliðsmannsins, Bjarka Más Elíssonar sem gekk til liðs við franska stórveldið frá One Veszprém í sumar lauk undirbúningsferð sinni í Japan með tveimur öruggum sigrum og metaðsókn.

PSG, sem er þjálfað af Dananum Stefan Madsen með Henrik Møllgaard sér við hlið sem aðstoðarþjálfara, vann Zeekstar Tokyo 41-31 fyrir framan 11.371 áhorfanda í Ariake Arena. Er það mesti áhorfendafjöldi sem sést hefur á leik félagsins í Japan.

Daginn eftir fylgdi liðið sigrinum eftir með 37-29 sigri á U21 árs landsliði Japans og lauk þar með fjórðu æfingaferð sinni í röð til landsins með glæsibrag.

Ferðin er orðin fastur liður í undirbúningi PSG fyrir nýtt tímabil og endurspeglar jafnframt sívaxandi vinsældir félagsins og handboltans í Japan.

„Þessi fjórða ferð okkar til Japans staðfestir að hún er orðin mikilvægur hluti af undirbúningi liðsins fyrir nýtt tímabil. Við erum afar ánægð að sjá áhugann á handbolta halda áfram að vaxa í Japan,“ sagði Thierry Omeyer, framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar Paris Saint-Germain, á heimasíðu félagsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top