Handkastið hefur verið leiðandi í umfjöllun um íslenskan handbolta síðustu ár og nú fer að styttast í að tímabilið hér heima fari af stað. Handkastið heldur úti tveimur hlaðvarpsþáttum í viku þegar tímabilið er í gangi auk þess að fjalla vel og ítarlega um allt sem tengist íslenska boltanum hér á vefnum. Olís-deild karla hefst í byrjun september en þangað til ætlar Handkastið að hita upp fyrir deildina og fjalla um öll liðin í deildinni. Í dag förum við yfir Stjörnuna. Almennt: Þjálfarinn: Breytingar: Fylgist með: Framtíðin: Við hverju má búast: Sjá einnig:
Mikil meiðsli vandræði hjá liðinu í fyrra. Stjarnan náði varla að stilla upp sama byrjunarliðinu í tvo leiki í röð. Stjarnan vann ekki leik í síðari umferðinni en náðu að halda sér uppi í gegnum umspilið þar sem liðið sigraði Fjölni og Hörð frá Ísafirði. Bikarkeppnin hefur alltaf verið keppni Stjörnunar en í fyrra sló Fjölnir þá út. Miklar breytingar áttu sér stað í þjálfarateymi Stjörnunar og vonast menn eflaust til að það sé komin ró í þau mál núna. Virkilega krefjandi tímabil í Garðabænum en fór eins vel og hægt var úr því sem komið var.
Sverrir Eyjólfsson tók við liðinu af Hrannari Guðmundssyni eftir að hafa stýrt það um tíma með honum í fyrra. Tandri Már Konráðsson verður honum til halds og trausts í vetur. Sverrir gerði fína hluti með Fjölni í Grill 66 deildinni um árið en nú er hann kominn til starfa hjá uppeldisfélaginu þar sem pressan mun verða meiri. Verður áhugavert að sjá hvort við sjáum ekki breytingu á spilamennsku Stjörnunnar í vetur.
Stjarnan hefur misst marga stóra pósta í sumar. Adam Thorsteinsson fór í atvinnumennsku, Hans Jörgen fór í Aftureldingu og Jón Ásgeir fór í Val svo einhverjir séu nefndir. Benedikt Marinó Herdísarson lagði skónna á hilluna og Sveinn Andri hélt erlendis í nám eftir langvarandi meiðsli. Stjarnan hefur fengið Dag Sverri Kristjánsson til að leysa af hægri skyttuna og Tóki Friðriksson kom til liðsins frá Færeyjum til að leysa línumannsstöðuna. Mikið af ungum strákum mun frá eldskírn í vetur undir stjórn Sverris og Tandra.
Lykilmenn:
Sigurður Dan Óskarsson, Dagur Sverrir Kristjánsson, Ísak Logi Einarsson
Dagur Sverrir Kristjánsson kom heim úr atvinnumennsku í sumar og mun fá stórt hlutverk hjá Stjörnunni í vetur. Hann mun þurfa að taka mikið til sín í sóknarleiknum þar sem Stjarnan mun tefla fram ungum leikmönnum í vetur.
Matthías Dagur Þorsteinsson er kraftmikil örvhent skytta sem einnig getur leyst horn. Hann er hluti af gríðarlega sterku 2008 landsliði Íslands. Fékk hlutverk í liðinu vegna meiðsla vandræða eftir áramót á síðustu leiktíð og stimplaði sig ágætlega inn. Það verður fróðlegt að sjá hvort hann fái enn fleiri tækifæri á komandi tímabili.
Stjarnan hefur misst marga lykilmenn og áttu erfitt uppdráttar í fyrra. Ég tel að þetta tímabil verði notað til þess að koma yngri leikmönnum inn í hópinn og gefa þeim reynslu. Stjarnan þarf fyrst og fremst að tryggja sæti sitt í deildinni að ári og vonast eftir góðum árangri í bikarkeppni eins og venjan hefur oft verið undanfarin ár.
Umfjöllun um kvennalið Gróttu
Umfjöllun um karlalið FH
Umfjöllun um karlalið HK
Umfjöllun um kvennalið ÍBV
Umfjöllun um kvennalið Hauka
Umfjöllun um kvennalið Vals
Umfjöllun um kvennalið KA/Þórs
Umfjöllun um karlalið Selfoss
Umfjöllun um karlalið Víkings
Umfjöllun um karlalið Þórs
Umfjöllun um karlalið Aftureldingar
Umfjöllun um karlalið Vals
Umfjöllun um kvennalið ÍR

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.