
Handkastið hefur verið leiðandi í umfjöllun um íslenskan handbolta síðustu ár og nú fer að styttast í að tímabilið hér heima fari af stað. Handkastið heldur úti tveimur hlaðvarpsþáttum í viku þegar tímabilið er í gangi auk þess að fjalla vel og ítarlega um allt sem tengist íslenska boltanum hér á vefnum. Olís-deild karla hefst í byrjun september en þangað til ætlar Handkastið að hita upp fyrir deildina og fjalla um öll liðin í deildinni. Í dag förum við yfir Fram. Síðasta tímabil: Þjálfarinn: Breytingar: Fylgist með: Tímabilið í fyrra hjá ríkjandi Íslands- og bikarmeisturum var hrein vonbrigði. Liðinu gekk afleitlega í Evrópudeildinni og á sama tíma gekk ekkert upp hér heima. Liðið komst ekki í Final 4 helgina eftir tap gegn KA í 8-liða úrslitunum og deyfð var yfir liðinu sem glímdi við mikil meiðsli. Nú eru hinsvegar engar afsakanir og Einar Jónsson þarf að rífa liðið upp á þann stað sem það var á, fyrir tveimur árum síðan. Framarar eiga að gera tilkall að anda í hálsmálið á bestu liðum landsins. Sjá einnig:
Upp og niður tímabil hjá Fram í fyrra. Liðið tók þátt í Evrópudeildinni síðasta vetur sem var mikil og góð reynsla fyrir hópinn en tók á sama tíma mikla orku frá liðinu og missti Fram marga leikmenn í meiðsli á þessum tíma. Liðið fann sig betur í deildinni eftir að Evrópudeildinni lauk en mistókst að gera nokkuð í bikarkeppninni og var sópað út úr úrslitakeppninni af FH í 8 liða úrslitum.
Einar Jónsson er búinn að vera lengi með liðið og náði frábærum árangri á þar síðustu leiktíð þar sem liðið varð Íslands- og bikarmeistari.
Annað árið í röð eru Framarar að missa stóra pósta í sínu liði en yngri leikmenn fá stærra hlutverk auk þess sem leikmenn eru að koma til baka úr erfiðum meiðslum. Stærsti missirinn fyrir liðið er án efa, markvörðurinn Breki Hrafn Árnason sem gekk í raðir Benfica og þá hefur Rúnar Kárason lagt skóna á hilluna.
Lykilmenn:
Dánjal Ragnarsson, Haukur Ingi Hauksson, Dagur Fannar Möller
Marel Baldvinsson átti að fá miklu stærra hlutverk sóknarlega Fram á síðustu leiktíð eftir að Reynir Þór Stefánsson afhendi honum lyklana og gekk í raðir Melsungen. Marel sleit hinsvegar krossband í lok september og missti af nánast öllu tímabilinu.
Framtíðin:
Vinstri hornamaðurinn, Alex Unnar Hallgrímsson var valinn í úrvals Evrópumótsins hjá U18 ára karla landsliðinu í sumar en hann átti frábært mót með íslenska liðinu sem endaði í 5.sæti. Hefur fengið fá tækifæri með Fram til þessa en Alex Unnar sýndi það með íslenska landsliðinu í sumar að það verður erfitt fyrir Einar Jónsson að réttlæta það að Alex Unnar fái ekki hlutverk hjá Fram liðinu í vetur. Gríðarlegt efni.
Við hverju má búast:
Umfjöllun um karlalið KA
Umfjöllun um karlalið Stjörnunnar
Umfjöllun um kvennalið Gróttu
Umfjöllun um karlalið FH
Umfjöllun um karlalið HK
Umfjöllun um kvennalið ÍBV
Umfjöllun um kvennalið Hauka
Umfjöllun um kvennalið Vals
Umfjöllun um kvennalið KA/Þórs
Umfjöllun um karlalið Selfoss
Umfjöllun um karlalið Víkings
Umfjöllun um karlalið Þórs
Umfjöllun um karlalið Aftureldingar
Umfjöllun um karlalið Vals
Umfjöllun um kvennalið ÍR

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.