Handkastið hefur verið leiðandi í umfjöllun um íslenskan handbolta síðustu ár og nú fer að styttast í að tímabilið hér heima fari af stað. Handkastið heldur úti tveimur hlaðvarpsþáttum í viku þegar tímabilið er í gangi auk þess að fjalla vel og ítarlega um allt sem tengist íslenska boltanum hér á vefnum. Olís-deild karla hefst í byrjun september en þangað til ætlar Handkastið að hita upp fyrir deildina og fjalla um öll liðin í deildinni. Í dag förum við yfir bikarmeistara Hauka. Síðasta tímabil: Þjálfarinn: Breytingar: Fylgist með: Framtíðin: Litlar breytingar á milli ára og Haukar hafa gert virkilega vel á markaðnum í styrkingum á hópnum. Miðað við hvað önnur lið í kringum Haukana hafa misst þá finnst mér það engin frekja hjá undirrituðum að þeir stefni á alla titla sem eru í boði í ár. Með FH og Val í Evrópudeildinni sé ég ekki annað lið en Haukana klára deildarmeistara titilinn. Sjá einnig:
Loksins loksins, kom titill í hús hjá Haukum á síðustu leiktíð þegar liðið varð bikarmeistari. Gunnar Magnússon var sóttur á Ásvelli til að sækja titla og það tókst strax á hans fyrsta ári. Liðið féll úr leik í undanúrslitum Íslandsmótsins eftir tap gegn erkifjendunum í FH í oddaleik. Eftir vonbrigða tímabil árið áður var bjartara yfir Ásvöllum í fyrra og fólk fór að láta sjá sig í stúkuna en Haukar rifu upp stemmingu um umgjörð í kringum heimaleikina sína sem var virkilega gaman að sjá.
Gunnar Magnússon er á sínu öðru ári með liðið en hann þekkir fjalir Ásvalla vel eftir veru sína hjá félaginu á sínum tíma.
Litlar breytingar hafa orðið á liðinu og leikmenn sem voru í litlu hlutverki í fyrra hafa horfið á braut. Þó hefur liðið misst stór Hauka hjörtu úr hópnum þar sem Brynjólfur Snær Brynjólfsson og Adam Haukur Baumruk hafa lagt skóna á hilluna. Hjörtur Ingi Halldórsson og Sigurður Jefferson hafa komið frá HK og gera má ráð fyrir því að þeir setji mark sitt á leik Hauka í vetur.
Lykilmenn:
Freyr Aronsson, Sigurður Jefferson, Grétar Ari Guðjónsson
Egill Jónsson er gríðarlega efnilegur hægri hornamaður sem ætti nú að fá aukið hlutverk í liði Hauka eftir að Brynjólfur Snær Brynjólfsson lagði skóna á hilluna. Egill hefur verið í landsliðsverkefnum hjá 2006 landsliðinu í gegnum tíðina. Gríðarlega hæfileikaríkur leikmaður sem gæti vel stolið hægri hornamannastöðunni af Andra Fannari Elíssyni.
Freyr Aronsson er gífurlegt efni sem spilar á miðjunni og var í stóru hlutverki hjá Haukum í fyrra þrátt fyrir að vera aðeins 17 ára. Það verður að teljast ansi líklegt að þetta verði hans síðasta tímabil í Hauka treyjunni og hann gæti gengið í raðir stórliðs í Evrópu næsta sumar. Gríðarlega sterkur bæði varnar og sóknarlega og það var ekki að sjá á fyrra, hversu ungur hann var á vellinum.
Við hverju má búast:
Umfjöllun um karlalið Fram
Umfjöllun um karlalið KA
Umfjöllun um karlalið Stjörnunnar
Umfjöllun um kvennalið Gróttu
Umfjöllun um karlalið FH
Umfjöllun um karlalið HK
Umfjöllun um kvennalið ÍBV
Umfjöllun um kvennalið Hauka
Umfjöllun um kvennalið Vals
Umfjöllun um kvennalið KA/Þórs
Umfjöllun um karlalið Selfoss
Umfjöllun um karlalið Víkings
Umfjöllun um karlalið Þórs
Umfjöllun um karlalið Aftureldingar
Umfjöllun um karlalið Vals
Umfjöllun um kvennalið ÍR

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.