Úr öskunni og inn í óvissuna
Eyjólfur Garðarsson

Handkastið hefur verið leiðandi í umfjöllun um íslenskan handbolta síðustu ár og nú fer að styttast í að tímabilið hér heima fari af stað. Handkastið heldur úti tveimur hlaðvarpsþáttum í viku þegar tímabilið er í gangi auk þess að fjalla vel og ítarlega um allt sem tengist íslenska boltanum hér á vefnum.

Olís-deild kvenna hefst á laugardaginn og hefur Handkastið hitað upp fyrir deildina og fjallað um öll liðin í deildinni.

Í dag förum við yfir Stjörnuna.

Síðasta tímabil:
Annað árið í röð slapp Stjarnan við fall eftir sigur í umspili. Þjálfarabreytingar urðu á liðinu í október þegar liðið var enn án sigurs eftir fyrstu heilu umferðina. Liðið var fáliðað og meiðsla vandræði lykilmanna settu strik í reikninginn annað tímabilið í röð. Það voru jákvæð teikn á lofti eftir þjálfarabreytingarnar en nú mætir Stjarnan með algjörlega nýtt lið til leiks.

Þjálfarinn:
Arnar Daði Arnarsson kom inn í þjálfarateymi liðsins eftir að Patrekur Jóhannesson var rekinn í lok október í fyrra. Nú hefur hann tekið við liðinu og verður Hanna Guðrún Stefánsdóttir áfram í þjálfarateyminu.

Breytingar:
Stjarnan er það lið sem hefur breyst mest allra liða í deildinni á milli ára. Átta leikmenn frá því í fyrra hafa yfirgefið félagið, auk leikmanna sem hættu á miðju tímabili í fyrra. Natasja Hammer og Sara Katrín Gunnarsdóttir ganga með barn undir belti og óvíst hvenær þær koma inn. Stjarnan hefur sótt til sín fjóra erlenda leikmenn auk þess sem ungir og óreyndir leikmenn hafa komið í Garðabæinn. Alls hafa tíu nýju leikmenn gengið í raðir félagsins.

Lykilmenn:
Inga Maria Roysdottir, Margrét Einarsdóttir, Natasja Hammer

Fylgist með:
Inga Maria Roysdóttir gekk í raðir Stjörnunnar fyrir síðustu leiktíð frá Færeyjum. Hlutverk hennar varð snemma mjög stórt eftir að Tinna Sigurrós Traustadóttir hætti. Inga Maria er öflugur varnar og sóknarmaður sem lét mikið að sér kveða seinna hluta tímabils. Það mun mikið mæða á henni í vetur, sér í lagi á meðan Natasja Hammer og Sara Katrín Gunnarsdóttir verða frá keppni vegna barnsburðar.

Framtíðin
Valgerður Elín Snorradóttir gekk í raðir Stjörnunnar frá uppeldisfélagi sínu Víking. Hún var markahæsti leikmaður Víkings í Grill66-deildinni á síðustu leiktíð. Hefur verið í stóru hlutverki í 2008 landsliði Íslands. Nú fær hún tækifæri í Olís-deildinni og gera má ráð fyrir því að hún verði í stóru hlutverki.

Við hverju má búast:
Þegar stórt er spurt er stundum fátt um svör. Stjarnan kemur inn í tímabilið sem sennilega eitt stærsta spurningarmerki deildarinnar. Það er erfitt að rýna í þær styrkingar sem Stjarnan hefur sótt í sumar. Bæði hefur liðið fengið unga og óreynda leikmenn með litla sem enga reynslu úr Olís-deildinni auk þess sem liðið hefur sótt þrjá erlenda leikmenn að utan sem lítið er vitað um. Trude Håkonsen er eini leikmaðurinn sem gekk í raðir Stjörnunnar sem hefur reynslu úr Olís-deildinni. Þetta gæti því farið í allar áttir hjá Stjörnunni í ár.

Sjá einnig:
Umfjöllun um karlalið Hauka
Umfjöllun um karlalið Fram
Umfjöllun um karlalið KA
Umfjöllun um karlalið Stjörnunnar
Umfjöllun um kvennalið Gróttu
Umfjöllun um karlalið FH
Umfjöllun um karlalið HK
Umfjöllun um kvennalið ÍBV
Umfjöllun um kvennalið Hauka
Umfjöllun um kvennalið Vals
Umfjöllun um kvennalið KA/Þórs
Umfjöllun um karlalið Selfoss
Umfjöllun um karlalið Víkings
Umfjöllun um karlalið Þórs
Umfjöllun um karlalið Aftureldingar
Umfjöllun um karlalið Vals
Umfjöllun um kvennalið ÍR

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top