Zoran Roganović er tekinn aftur við þjálfun karlalandsliðs Svartfjallalands, rúmum þremur árum eftir að hann lét af störfum hjá landsliðinu. Handknattleikssamband Svartfjallalands tilkynnti um ráðningu Roganović fyrr í vikunni. Hann tekur við af Frakkanum Didier Dinart, en samningur hans rann út í sumar. Roganović þekkir starfið afar vel en hann stýrði Svartfjallalandi frá 2018 þar til hann lét af störfum í janúar 2023, að loknu heimsmeistaramótinu. Besti árangur Svartfellinga undir hans stjórn kom á EM 2022 þegar liðið hafnaði í 11. sæti. Það er besti árangur karlalandsliðs Svartfjallalands á stórmóti frá upphafi. Roganović stýrði liðinu einnig á EM 2020 og HM 2023. Hinn 48 ára gamli Roganović þjálfar samhliða sænska úrvalsdeildarliðið HK Malmö, sem hann stýrði alla leið í úrslitaeinvígið um sænska meistaratitilinn á síðustu leiktíð. Fyrsti mótsleikur Svartfjallalands eftir endurkomu Roganović verður gegn Ungverjalandi 5. nóvember í undankeppni EM 2028. Svartfjallaland er einnig í riðli með Færeyjum og Kósovó. Sonur Roganovic, Nikola Roganovic gekk í sumar í raðir Gummersbach frá Malmö og hefur farið vel af stað í þýsku Bundesligunni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.