Frábær byrjun Fram skilaði sigri á Stjörnunni
Sævar Jónasson

Fram vann öruggan sjö marka sigur á Stjörnunni, 35-28, í 2. umferð Olís deildar kvenna í Garðabæ í kvöld. Framkonur náðu snemma góðum tökum á leiknum og voru sjö mörkum yfir í hálfleik, 17-10.

Fram byrjaði leikinn af miklum krafti. Eftir að Trude Blestrud Håkonsen skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Stjörnuna tóku gestirnir yfir leikinn og náðu fljótt góðu forskoti. Hanna Guðrún Hauksdóttir, Katrín Anna Ásmundsdóttir, Hulda Dagsdóttir og Lena Margrét Valdimarsdóttir komu allar við sögu þegar Fram breytti stöðunni úr 2-3 í 2-9.

Stjarnan átti erfitt með að finna leiðir fram hjá Framliðinu á þessum kafla og Sara Schröder Winde gerði sitt besta til að halda Stjörnunni inní leiknum. Fram hélt Stjörnunni í hæfilegri fjarlægð það sem eftir lifði fyrri hálfleiks og fór með sjö marka forskot inn í leikhléið, 17-10.

Fram hélt áfram þar sem frá var horfið eftir hlé. Lena Margrét Valdimarsdóttir kom gestunum í 18-10 áður en Inga Maria Roysdóttir svaraði fyrir Stjörnuna. Munurinn jókst jafnt og þétt og þegar rúmar tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik var staðan orðin 25-15 fyrir Fram.

Stjörnukonur gáfust þó ekki upp og náðu að minnka muninn undir lokin. Inga Maria Roysdóttir skoraði tvö síðustu mörk leiksins en forskot Fram var orðið of mikið og gestirnir fögnuðu að lokum öruggum 35-28 sigri.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top