Ótrúleg endurkoma ÍBV – sneru við níu marka forskoti Fram
Egill Bjarni Friðjónsson

ÍBV vann magnaðan 33-30 útisigur á Fram í Olís deild karla í kvöld eftir ótrúlegan viðsnúning. Fram hafði tögl og hagldir lengi vel og náði mest níu marka forskoti en Eyjamenn gáfust ekki upp, unnu sig jafnt og þétt inn í leikinn og tóku öll völd á lokakaflanum.

Framarar byrjuðu af miklum krafti og náðu snemma góðu forskoti. Heimamenn voru komnir í 11-6 eftir tæpar tólf mínútur og héldu áfram að bæta í. Munurinn fór upp í átta mörk, 18-10, þegar rúmar 24 mínútur voru liðnar og skömmu síðar náði Fram mesta forskoti sínu í leiknum, níu mörkum í stöðunni 19-10.

Eyjamenn náðu aðeins að rétta úr kútnum undir lok fyrri hálfleiks og minnkuðu muninn niður í fimm mörk. Fram leiddi 19-14 þegar gengið var til búningsherbergja og virtist enn vera með góð tök á leiknum.

ÍBV kom hins vegar af miklum krafti inn í síðari hálfleikinn. Eyjamenn söxuðu hratt á forskot Fram og eftir rúmar sjö mínútur var munurinn aðeins eitt mark, 21-20.

Fram náði að halda gestunum frá sér um stund og komst meðal annars í 23-20 og síðar 25-23. ÍBV hélt þó áfram að sækja og jafnaði leikinn í 25-25 þegar tæpar 14 mínútur voru eftir.

Eftir það var mikil spenna. Fram komst aftur yfir og leiddi 28-27 þegar rúmar átta mínútur lifðu leiks en ÍBV svaraði enn á ný. Eyjamenn jöfnuðu í 28-28 og komust síðan yfir, 29-28, þegar tæpar sjö mínútur voru eftir.

Fram jafnaði í 29-29 en ÍBV var sterkara liðið þegar mest reyndi. Gestirnir komust í 31-29 og þrátt fyrir að Fram minnkaði muninn í eitt mark þegar tæp mínúta var eftir héldu Eyjamenn haus.

ÍBV skoraði síðustu tvö mörk leiksins og innsiglaði þar með magnaðan 33-30 sigur eftir að hafa verið níu mörkum undir í fyrri hálfleik.

Haukur Ingi Hauksson var markahæstur Fram með 11 mörk, Max Emil Stenlund skoraði sex og Alex Unnar Hallgrímsson fjögur. Stefán Freyr Jónsson varði 11 skot í marki Fram og Jóhann Ágústsson tvö.

Hjá ÍBV var Dagur Arnarsson markahæstur með sjö mörk. Sigtryggur Daði Rúnarsson og Sveinn José Rivera skoruðu fimm mörk hvor. Sigurmundur Gísli Unnarsson varði níu skot og Petar Jokanovic fjögur.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top