Hafnarfjörður er rauður eftir ótrúlegar senur – Grétar Ari hetjan
Jón Gautur Fótó

Haukar og FH mættust í Hafnarfjarðarslag í Olís deild karla í kvöld í leik sem var að ljúka í Kaplakrika. Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Haukar voru örlítið sterkari og var staðan í hálfleik 18-20.

Haukar voru sterkari aðilinn mest allan seinni hálfleikinn og voru yfir með fimm mörkum yfir þegar fjórar mínútur voru eftir af leiknum en þá tók FH rosalegan kafla og náðu að minnka muninn niður í eitt mark. Haukar fengu tækifæri á að klára leikinn undir lokin en sóknin endaði með skoti í stöngina. Aron Pálmarsson tók leikhlé þegar sjö sekúndur voru eftir og virtist það leikhlé vera að fara skila FH stigi þegar Ómar Darri Sigurgeirsson slapp í gegn en Grétar Snær Guðjónsson varði frá Ómari og loktölur í Kaplakrika 34-35 fyrir Haukum og Hafnarfjörður er rauður á litinn í minnsta kosti fram að næstu viðureign liðanna.

Ómar Darri Sigurgeirsson var atkvæðamestur í liði FH en hann skoraði tíu mörk. Brynjar Narfi Arnadal skoraði sjö og Ágúst Guðmundsson og Jón Bjarni Ólafsson skoruðu fjögur mörk, aðrir skoruðu minna.

Össur Haraldsson var markahæsti maður vallarins með ellefu mörk hjá Haukum í kvöld. Skarphéðinn Ívarsson skoraði sex mörk.Andri Fannar Elíasson og Freyr Aronsson koruðu báðir fimm mörk og aðrir minna.

Leikurinn hefst klukkan 19:30.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top