Mosfellingar ekki í vandræðum með Selfoss
Egill Bjarni Friðjónsson

Afturelding fékk Selfyssinga í heimsókn í Varmá í Olís deild karla í leik sem var að ljúka. Jafnræði var með liðunum til að byrja með en um miðjan fyrri hálfleik stungu heimamenn af og leiddu með átta mörkum í hálfleik, 20-12 og brekkan þung fyrir gestina.

Heimamenn í Mosfellsbæ gáfu ekkert eftir og héldu í forskot sitt og lönduðu að lokum góðum átta marka sigri 42-34.

Tólf leikmenn Aftureldingar komust á blað í kvöld og var Ævar Smári Gunnarsson atkvæðamestur með níu mörk. Oscar Sven Lethoff skoraði átta mörk. Harri Halldórsson skoraði fimm og aðrir minna.

Jónas Karl Gunnlaugsson var markahæstur hjá Selfoss en hann skoraði tíu mörk í kvöld. Guðjón Baldur Ómarsson og Hákon Garri. Gestsson skoruðu báðir fjögur mörk og aðrir skoruðu minna.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top