Stjarnan og Fram mættust í Olís deild karla í leik sem var að ljúka í Hekluhöllinni í Garðabæ. Stjarnan byrjaði frábærlega og komst í 3-0 en Framarar svöruðu og jöfnuðu leikinn. Mikið jafnræði var svo með liðunum það sem eftir lifði af fyrri hálfleiknum en Stjörnumenn voru örlítið sterkari og voru tveimur mörkum yfir í hálfleik 17-15. Stjörnumenn voru ekki að hleypa gestunum í Fram inn í leikinn og silgdu að lokum átta marka sigri heim en leiknum leik með 37-29 sigri Stjörnunnar og Stjarnan er að vinna sinn fyrsta leik á tímabilinu. Ísak Logi Einarsson var atkvæðamestur í liði Stjörnunnar og skoraði tíu mörk úr nitján skotum. Jóel Bernburg skoraði sjö mörk. Tandri Már Konráðssonog Gauti Gunnarsson skoruðu svo báðir sex mörk og aðrir minna. Theodór Sigurðsson var markahæstur í liði Fram með sjö mörk úr átta skotum. Haukur Ingi Hauksson skoraði fjögur mörk fyrir Fram í kvöld og aðrir minna. 

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.