
Í kvöld mættust HK 2 og Víðir í Garði í Grill 66 deild karla en leikið var í Kórnum. Fyrri hálfleikur var jafn og spennandi og lítið sem bar á milli liðanna. Liðin skiptust á að hafa forskotið en þá var oftast forskotið bara 1 mark. Síðustu mínútur fyrri hálfleiksins náðu HK-ingar hinsvegar aðeins að auka forskotið og fóru inn til búningsherbergja með 3 marka forskot. Hálfleikstölur 16-13. Í seinni hálfleik voru HK-ingar fljótir að auka muninn og voru komnir með 6 marka forskot þegar 10 mínútur voru liðnar. Allt stefndi í öruggan sigur þeirra en Víðismenn neituðu að játa sig sigraða og náðu að klóra vel í bakkann í lokin. Nær komust þeir þó ekki að minnka í 1 mark. Lokatölur 30-29 fyrir HK-inga. Hjá HK var Viktor Bjarki Einarsson markahæstur með 9 mörk. Patrekur Jónas og Patrekur Guðni vörðu samtals 12 skot. Hjá Víði var Tymon Ponto markahæstur með 8 mörk. Jan Widera varði 15 skot. 

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.