Fyrsti sigur Harðverja á tímabilinu kom á Torfnesi
Sævar Jónasson

Í dag mættust Harðverjar og Valur 2 í Grill 66 deild karla en leikið var í Íþróttahúsinu á Torfnesi á Ísafirði.

Valsarar, sem voru einungis með 10 leikmenn á skýrslu í dag, voru heilt yfir sterkari aðilinn allan fyrri hálfleikinn. Þeir tóku frumkvæðið strax í byrjun og voru svo yfir 12-14 í hálfleik.

Eftir um 10 mínútna leik í seinni hálfleik tóku heimamenn í Herði yfirhöndina í leiknum og náðu mest 5 marka forskoti. Sigldu þeir sigrinum heim að lokum þrátt fyrir að Valsarar hafi saumað vel að þeim undir lokin.

Fyrsti sigur Harðverja á tímabilinu kominn í hús og þeir komnir á blað.

Hjá Herði var Jonathan Santos markahæstur með 5 mörk. Hermann Alexander Hákonarson átti mjög flottan leik og varði 18 skot. Lazar Minic tók 1 víti.

Hjá Val var Kári Steinn Guðmundsson með 7 mörk. Þórhallur Árni Höskuldsson varði 15 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top