Í kvöld mættust Fram 2 og Hvíti Riddarinn í Grill 66 deild karla en leikið var í Lambhagahöllinni. Mosfellingarnir í Hvíta Riddaranum voru alltaf skrefi á undan í fyrri hálfleik. Þeir komust meðal annars í 7-10 og fóru svo inn til búningsherbergja með stöðuna 11-13 í hálfleik. Í seinni hálfleik bættu Mosfellingar bara í og eftir korter var staðan orðin 15-22. Eftir það voru úrslitin ráðin. Lokatölur urðu svo 22-27. Sigurjón Bragi Atlason var stórkostlegur og varði 25 skot. Brynjar Búi Davíðsson og Kristján Andri Finnsson settu báðir 5 mörk. Hjá Fram var Marel Baldvinsson með 10 mörk. Jóhann Ágústsson varði 15 skot. 

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.