Fjórði sigur Gróttu í röð
Eyjólfur Garðarsson)

Í kvöld mættust Fjölnir og Grótta í Grill 66 deild karla en leikið var í Egilshöll.

Fyrstu 20 mínúturnar voru Grótta sterkari aðilinn í leiknum. Fjölnismenn komust svo í fyrsta skipti yfir í leiknum á 25 mínútu.

Hálfleikstölur voru svo 18-18 og stál í stál í Egilshöll.

Fjölnis menn byrjuðu mun sprækari og komust meðal annars í 24-21. Þegar 12 mínútur voru eftir komust Gróttu menn svo aftur yfir og litu ekki um öxl eftir það.

Sigruðu þeir leikinn að lokum 32-39 og þeir halda því áfram á sigurbraut. Þeirra 4 sigur í röð.

Hjá Fjölni var Akureyringurinn Heiðmar Örn Björgvinsson markahæstur með 10 mörk. Garpur Druzin varði 10 skot.

Hjá Gróttu var Sæþór Atlason með 11 mörk. Hannes Pétur og Þórður Magnús vörðu samtals 10 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top