Jökull Blöndal með 13 mörk í 10 marka sigri ÍR
Sævar Jónasson

Í kvöld mættust ÍR og Selfoss 2 í Grill 66 deild karla en leikið var í Skógarselinu.

ÍR-ingar tóku strax yfirhöndina í byrjun leiks og leiddu allan fyrri hálfleikinn. Selfyssingar voru þó ekki langt frá þeim og önduðu lengi vel í hálsmálið á þeim. Hálfleikstölur voru 22-17 fyrir ÍR.

Eftir 10 mínútna seinni hálfleik voru ÍR-ingar komnir með 10 marka forskot. Mest náðu þeir 15 marka forskoti en lokatölur urðu 47-37.

Jökull Blöndal setti 13 mörk fyrir ÍR og Bernand Darkoh setti 8 mörk. Markmennirnir vörðu 10 skot samtals.

Hjá Selfossi setti Aron Leo Guðmundsson 8 mörk. Ísak Kristinn Jónsson varði 8 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top