
Sverrir Eyjólfsson, þjálfari Stjörnunnar, var að vonum sáttur með sigur sinna manna á Fram í kvöld, 37-29. Þetta var jafnframt fyrsti deildarsigur Stjörnunnar í 307 daga. Hann sagði í viðtali við Handkastið að varnarleikur Stjörnunnar og markvarsla Sigga Dan fyrir aftan hafi skopið þennan sigur. ,,Við skorum á sama tíma 37 mörk og lítið úr hraðaupphlaupum svo ég er virkilega ánægður með sóknina í dag en mest þó varnarleikinn og Sigga." Sverrir segir að liðið hafi verið að taka ákveðin vaxtarskref undanfarið og hann hafi haft virkilega góða tilfininingu fyrir leiknum í kvöld í undirbúningi liðsins. Viðtalið við Sverri smá sjá í heild sinni hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.