Dagur Árni með ellefu mörk þegar KA vann ÍBV
Egill Bjarni Friðjónsson

KA vann sannfærandi sigur á ÍBV, 31–25, þegar liðin mættust á Akureyri í fimmtu umferð Olís-deildar karla í kvöld. Dagur Árni Heimisson fór fyrir sóknarleik heimamanna með ellefu mörk og Ágúst Elí Björgvinsson varði 18 skot í marki KA.

KA er með átta stig eftir fimm leiki, jafnmörg og Haukar sem hafa leikið einum leik færra. ÍBV er með fjögur stig eftir fimm leiki.

Jafnræði var með liðunum framan af og staðan var 9–9 áður en KA skoraði þrjú mörk í röð. Heimamenn héldu forskotinu út hálfleikinn og leiddu 13–11 þegar gengið var til búningsherbergja.

KA skoraði fyrstu tvö mörk síðari hálfleiks en Eyjamenn héldu í við heimamenn og minnkuðu muninn í 17–15. Þá náði KA góðum kafla og skoraði sjö af næstu átta mörkum leiksins. Staðan breyttist þannig í 24–16 og heimamenn komnir með átta marka forskot.

ÍBV náði að minnka muninn í 26–22 þegar tæpar sex mínútur voru eftir. KA svaraði hins vegar með þremur mörkum í röð og tryggði sér að lokum sex marka sigur.

Dagur Árni var langmarkahæstur hjá KA með ellefu mörk. Dagur Gautason skoraði sex, Jens Bragi Bergþórsson fimm og Arnór Ísak Haddsson fjögur.

Hjá ÍBV var Kristófer Ísak Bárðarson markahæstur með sex mörk og Gary Emanuel Phillips skoraði fimm. Daníel Þór Ingason og Sveinn José Rivera gerðu þrjú mörk hvor.

Ágúst Elí varði 18 skot hjá KA en markverðir ÍBV vörðu samtals níu. Petar Jokanovic varði fimm og Morgan Goði Garner fjögur.

Um var að ræða fyrsta leik ÍBV eftir að Erlingur Richardsson yfirgaf skútuna og tók við Minden. Þá var Magnús Dagur Jónatansson að snúa aftur í KA-heimilið eftir að hafa yfirgefið KA eftir 1.umferðina.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top