ÍBV vann fimm marka sigur á HK 29-24, í 4. umferð Olís-deildar kvenna í dag. Eyjakonur eru með fullt hús stiga eftir fjóra leiki en HK er enn án stiga. Dagur Snær Steingrímsson, þjálfari HK, stýrði ekki liðinu í dag. Í hans stað voru Davíð Elí Heimisson og Hákon Bridde við stjórnvölinn. Eyjakonur tóku frumkvæðið strax í upphafi og skoruðu fyrstu fjögur mörk leiksins. Sóknarleikur HK gekk erfiðlega framan af og eftir rúmlega fimmtán mínútna leik var staðan 9-1 fyrir ÍBV. Heimakonur náðu aðeins að rétta úr kútnum fyrir hlé en Eyjakonur leiddu 14-8 í hálfleik. ÍBV jók forskotið á ný í síðari hálfleik og náði tíu marka forystu, 22-12. HK gafst þó ekki upp og minnkaði muninn í fjögur mörk, 26-22, þegar rúmar fimm mínútur voru eftir. Nær komust heimakonur ekki og ÍBV tryggði sér að lokum sigur, 29-24. Ásdís Halla Hjarðar og Birna Berg Haraldsdóttir voru markahæstar hjá ÍBV með sex mörk hvor. Sandra Erlingsdóttir skoraði fimm mörk og Andrea Jacobsen fjögur. Hjá HK var Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir markahæst með átta mörk en Leandra Nóttsól Salvamoser og Tinna Ósk Gunnarsdóttir skoruðu fjögur mörk hvor. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.