Valur vann öruggan sigur í fyrsta leik Ísabellu
Egill Bjarni Friðjónsson)

Valur vann öruggan átta marka sigur á KA/Þór, 35:27, í Olís-deild kvenna í kvöld. Þetta var fyrsti leikur Ísabellu Schöbel Björnsdóttur í marki Íslands- og bikarmeistaranna eftir að hún gekk til liðs við félagið frá ÍR.

Valur var án landsliðsmarkvarðarins Hafdísar Renötudóttur og því fékk Ísabella strax tækifæri í marki liðsins. Hún varði fimm skot í leiknum en Iðunn Vala St. Kristbjörnsdóttir varði tvö.

Gestirnir úr Reykjavík tóku frumkvæðið strax í upphafi og komust í 3:0. KA/Þór náði að minnka muninn í eitt mark, 3:4, en Valur svaraði með góðum kafla og náði mest sex marka forskoti í fyrri hálfleik. Staðan í leikhléi var 17:13 fyrir Val.

KA/Þór byrjaði síðari hálfleikinn ágætlega og minnkaði muninn í þrjú mörk, 14:17, en eftir það tók Valur aftur völdin. Um miðjan hálfleikinn var munurinn orðinn átta mörk, 21:29, og mest náði Valur tíu marka forskoti, 24:34 og 25:35. KA/Þór skoraði síðustu tvö mörkin og lokatölur urðu 27:35.

Katla María Magnúsdóttir var markahæst Vals með átta mörk og Ásthildur Jóna Þorhaldsdóttir skoraði sjö. Arna Karitas Eiríksdóttir, Ásdís Þóra Ágústsdóttir og Elísa Elíasdóttir skoruðu fjögur mörk hver.

Hjá KA/Þór var Lenka Ratvajská markahæst með sex mörk en Agatha Kjærbæk Djurhuus, Bergrós Ásta Guðmundsdóttir og Joan Rúnadóttir Johannesen skoruðu fimm mörk hver. Ástrós Bender Mikaelsdóttir varði sjö skot í marki KA/Þórs.

Valur er eftir sigurinn með fjögur stig eftir fjóra leiki en KA/Þór er enn án stiga eftir fjóra leiki.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top