Í kvöld mættust FH og Fjölnir í Grill 66 deild kvenna en leikið var í Kaplakrika. Fyrstu 10-12 mínútur leiksins voru jafnar en eftir það náðu FH stelpur að slíta sig lausa frá Fjölni. Náðu þær mest 6 marka forskoti í fyrri hálfleik og voru hálfleikstölur 15-9. Í seinni hálfleik var munurinn fljótlega kominn upp í 9 mörk hjá FH. Hélst munurinn mest í 7-9 mörkum í allan seinni hálfleik. FH stelpur sigldu svo góðum sigri í höfn. Lokatölur urðu 29-22. Hjá FH var Sylvía Björt Blöndal markahæst með 8 mörk. Sonja Szöke varði 14 skot. Hjá Fjölni var Berglind Benediktsdóttir markahæst með 7 mörk. Brynja og Sara vörðu 4 skot í markinu. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.