HK 2 og Valur 2 mættust í dag í Kórnum í Grill 66 deild kvenna. Gestirnir í Val voru örlítið betri lengst af í fyrri hálfleik en leikurinn var samt sem áður mjög jafn. Síðustu mínúturnar í fyrri hálfleik náðu svo HK stelpurnar að ná yfirhöndinni og fóru inn til búningsherbergja með 3 marka forskot. 12-9 voru hálfleikstölur. HK stelpur héldu uppteknum hætti í seinni hálfleik og leyfðu Vals stúlkum aldrei að koma nálægt sér. Voru úrslitin ráðin frekar snemma. Voru þær mest komnar 7 mörkum yfir á tímabili. Lokatölur urðu svo 27-20. Öruggur og sannfærandi sigur hjá heimastúlkum í HK. Hjá HK var Tinna Dröfn Hauksdóttir markahæst með 9 mörk. Freydís Ragna og Elísabet Millý vörðu samtals 14 skot. Hjá Val var Eyrún Anna Arnarsdóttir markahæst með 5 mörk. Iðunn Vala varði 6 skot. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.