Í kvöld mættust Víkingur 2 og HK 2 í Virkinu í Grill 66 deild karla. HK-ingar voru örlítið betri aðilinn í fyrri hálfleik og leiddu leikinn lengst af. Oftast var það á bilinu 1-3 mörk. Hálfleikstölur voru 15-16. Mikið jafnræði var með liðunum fyrstu 20 mínútur seinni hálfleik en Víkingar náðu svo að komast í 23-22 þegar rúmar 10 mínútur voru eftir af leiknum. Víkingar voru svo skrefi á undan á lokakaflanum og náðu að kreista fram eins marks sigur. Lokatölur 30-29. Hjá Víking 2 var Benedikt Emil Aðalsteinsson markahæstur með 8 mörk. Daði Bergmann og Kristján Rafn vörðu samtals 15 skot. Hjá HK 2 var Alexander Sigursteinsson markahæstur með 8 mörk. Patrekur Guðni og Patrekur Jónas vörðu samtals 12 skot. 

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.