Fram 2 og Grótta mættust í dag í Úlfarsárdalnum í Grill 66 deild karla. Fyrstu mínútur leiksins voru nokkuð jafnar en eftir um 10 mínútna leik náði Grótta góðum tökum á leiknum með góðu forskoti. Litu þeir aldrei um öxl eftir það. Hálfleikstölur voru 13-21 fyrir Gróttu. Eftir um 10 mínútna leik í seinni hálfleik voru Gróttu menn komnir í 11 marka forskot. Voru þeir að leika vel og fínn heildarbragur á þeirra leik. Þeir stigu svo ennfrekar á bensíngjöfina það sem eftir lifði leiks og uppskáru að lokum 14 marka stórsigur. Lokatölur 24-38 fyrir Gróttu sem eru enn taplausir það sem af er móti. Það er ljóst að Grótta gæti verið að fara í æsispennandi keppni við ÍR um að vinna deildina. Hjá Gróttu var Sæþór Atlason markahæstur eins og oft áður með 8 mörk. Þórður Magnús og Hannes Pétur vörðu samtals 18 skot. Hjá Fram 2 var Alex Unnar Hallgrímsson markahæstur með 7 mörk. Jóhann Ágústsson varði 11 skot. 

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.