Í dag mættust Valur 2 og ÍR í Grill 66 deild karla en leikið var á Hlíðarenda. Leikurinn var mjög sveiflukenndur. Í fyrri hálfleik voru Valsararnir einfaldlega heilt yfir betri lengst af. Þeir voru lengst af yfir en ÍR-ingar náðu að komast yfir í lok hálfleiksins og voru 9-10 yfir í hálfleik. Í seinni hálfleik tóku ÍR-ingar yfir leikinn. Eftir aðeins örfáar mínútur voru þeir komnir í 6 marka forskot. Mest fóru þeir svo í 11 marka forskot. Lokatölur urðu svo 19-29 fyrir ÍR. Hjá ÍR var Jökull Blöndal markahæstur með 12 mörk. Alexander Ásgrímsson varði 13 skot. Hjá Val 2 var Kári Steinn Guðmundsson markahæstur með 6 mörk. Jens Sigurðarson varði 11 skot. 

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.