Í dag mættust Víðir og Hörður í Grill 66 deild karla en leikið var í Garði á Suðurnesjum. Harðar menn voru miklu betri í fyrri hálfleik á meðan Víðis menn voru ekki á deginum sínum. Harðverjar komust fljótt í gott forskot og mest náðu þeir 10 marka forskoti í fyrri hálfleik. Hálfleikstölur voru 12-20 fyrir gestina frá Ísafirði. Í seinni hálfleik héldu Harðverjar áfram í gott forskot og voru lengi vel 5-8 mörkum yfir mest allan seinni hálfleikinn. En þegar nokkrar mínútur voru eftir náðu Víðismenn að minnka muninn niður í 1 mark. Nær komust þeir ekki og lokatölur 32-33 í athyglisverðum leik. Hjá Herði var Jonathan Santos markahæstur með 9 mörk. Hermann Alexander Hákonarson varði 12 skot. Hjá Víði var Eiríkur Guðni Þórarinsson markahæstur með 11 mörk. Jacek Kowal og Sigurjón vörðu samtals 13 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.