Völdu fimm landsliðsmenn í ímyndaða pókerferð
Sævar Jónasson

Stymmi klippari og Sérfræðingurinn, Arnar Daði Arnarsson, brugðu á leik í nýjasta þætti Handkastsins og völdu fimm leikmenn íslenska karlalandsliðsins í handbolta í ímyndaða ferð á pókerstað í miðju landsliðsverkefni.

Tilefnið var umræða um meint pókerstaða heimsókn og áfengisneyslu leikmanna íslenska karlalandsliðsins í fótbolta í síðasta landsliðsverkefni.

Í Handkastinu var gagnrýnt að nöfn þeirra sem sagðir eru hafa komið við sögu hefðu ekki verið birt í íslenskum fótboltahlaðvörpum. Að mati þáttastjórnenda væri afleiðingin sú að nær allur landsliðshópurinn lægi undir grun.

Þeir veltu jafnframt fyrir sér hvort meðvirkni réði för í umræðunni og hvort Handkastið myndi þegja yfir sambærilegu máli í handboltanum. Í framhaldinu var slegið á létta strengi og valinn fimm manna hópur úr nýjasta landsliðshópi Snorra Steins Guðjónssonar sem þeir töldu líklegastan til að skella sér í slíka ferð.

Hægt er að hlusta á umræðuna í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top