Arnór ósáttur við byrjunina hjá TTH Holstebro á tímabilinu
JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP

TTH Holstebro undir stjórn aðstoðarlandsliðsþjálfara Íslands, Arnórs Atlasonar hefur valdið miklum vonbrigðum í dönsku úrvalsdeildinni það sem af er tímabili. Liðið hefur aðeins náð í sjö stig í fyrstu tíu umferðunum og situr í 10. sæti deildarinnar. 

Arnór Atlason viðurkennir að frammistaðan hafi verið langt undir væntingum en vill ekki nota meiðsli eða mikið leikjaálag sem afsökun.

TTH Holstebro beið lægri hlut gegn Nordsjælland um síðustu helgi og var tapið enn eitt áfallið fyrir lærisveina Arnórs sem hafa átt erfitt með að finna stöðugleika í leik sínum á tímabilinu.

Í samtali sem birtist á heimasíðu félagsins fór Arnór yfir stöðu liðsins og þær áskoranir sem það hefur staðið frammi fyrir í upphafi tímabilsins.

„Fyrst og fremst finnst mér við ekki hafa verið nógu stöðugir í okkar frammistöðu. Það hafa verið allt of miklar sveiflur. Auðvelda skýringin væri að við höfum verið án leikmanna sem hafa venjulega spilað mikið, en við getum ekki notað það sem afsökun,“ sagði Arnór.

TTH Holstebro hefur þurft að takast á við þétt leikjaprógramm í haust enda leikur liðið bæði í dönsku úrvalsdeildinni og Evrópudeildinni auk þess að taka þátt í dönsku bikarkeppninni.

Liðið er komið í átta liða úrslit bikarkeppninnar og þátttakan í Evrópudeildinni hefur verið kærkomin reynsla fyrir leikmenn og þjálfarateymi félagsins. Álagið hefur þó verið mikið, sérstaklega þar sem nokkrir leikmenn liðsins hafa takmarkaða reynslu af því að spila bæði í deildarkeppni og Evrópukeppni á sama tíma.

Þétt leikjadagskrá hefur jafnframt haft áhrif á æfingafjölda og undirbúning fyrir einstaka leiki. Arnór vill þó ekki skýla sér á bak við það og telur að leikmannahópurinn búi yfir nægum gæðum til að gera betur.

„Mér finnst við vera með sterkan leikmannahóp þar sem margir leikmenn hafa fengið stærra hlutverk. Verkefnið okkar er að hækka lægsta frammistöðustigið og sýna meiri stöðugleika en við höfum gert í síðustu leikjum,“ sagði Arnór.

TTH Holstebro er sem stendur eins og fyrr segir í 10. sæti dönsku úrvalsdeildarinnar með sjö stig eftir tíu leiki og ljóst að liðið þarf að bæta árangurinn ætli það sér að blanda sér í baráttuna ofar í deildinni.

Fram undan eru meðal annars leikir gegn Skanderborg AGF og TMS Ringsted þar sem Arnór og lærisveinar hans freista þess að snúa genginu við.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top