Stymmi spáir í spilin: 11. umferð Olís deild karla

Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna.

Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 11.umferð fari í Olís deild karla.

Afturelding – Haukar (Miðvikudagur 18:30) / Sigurvegari: Haukar

Þegar Haukar mæta á handboltavöllinn þessa dagana þá getum við bókað hvernig þetta endar. Afturelding hafa samt verið flottir í vetur og gefið þessum bestu liðum í deildinni leiki en ég held því miður að það dugi ekki til í kvöld og Haukarnir haldi áfram að vera með fullt hús stiga.

ÍBV - Fram (Fimmtudagur 18:00) / Sigurvegari: Fram
Fram sýndu góða takta gegn HK í fyrri hálfleik í síðasta leik en misstu það aðeins niður í síðari hálfleik. ÍBV strögglaði gegn Aftureldingu á sama tíma. Meiðsli hafa herjað á báða þessa hópa en ég held að Fram fari til Eyja og vinni óvæntan sigur að þessu sinni og finni leikgleðina aftur hægt og rólega.  

Stjarnan - Selfss (Föstudagur 18:30) / Sigurvegari: Stjarnan
Er þetta síðasta líflína Selfyssinga. Þeir eru komnir 5 stigum á eftir liðunum fyrir ofan sig í deildinni og ef hægt er að tala um „must win“ leik þá er það á föstudagskvöldið. Stjarnan gerði sitt annað jafntefli á tímabilinu þegar þeir tryggðu sér stig gegn Víking á lokasekúndum leiksins eftir að hafa leitt skömmu áður. Ég held að Stjarnan nái loksins að vinna leik sem þeir eru fyrirfram sterkari aðilinn og komi sér af fallsvæðinu í bili.    

Víkingur - FH (Föstudagur 19:00) / Sigurvegari: FH

FH hafa verið á góðu róli í deildinni undanfarið og sigur þeirra á Val í síðustu umferð var kærkominn. Víkingar eru eflaust svekktir að hafa misst leikinn gegn Stjörnunni niður í jafntefli eftir að hafa komist yfir undir lok leiksins og haft tækifæri til að stela báðum stigunum í lokasókninni. FH munu hins vegar sýna mátt sinn og meginn og vinna Víkinga þægilega á föstudagskvöldið þrátt fyrir að vera í Evrópuálagi.

Þór – KA (Sunnudagur 18:00) / Sigurvegari: KA

Eitt skemmtilegasta einvígi deildinnar, rýgur af gamla skólanum. Þór vann fyrri einvígi liðanna í vetur og vilja KA menn eflaust hefna fyrir það. Gengi liðanna eftir að liðin mættust síðast hefur verið misjafnt og hafa Þórsarar ekki náð að setja upp marga góða leiki síðan sigurinn á KA kom meðan KA hafa verið virkilega sterkir í deildinni. KA mun ná að hefna fyrir tapið fyrr í vetur og skilja Þórsara eftir í neðri hluta deildinnar.

1.umferð (6 réttir)
2.umferð (4 réttir)
3.umferð (4 réttir)
4.umferð (1 réttur)
5.umferð (5 réttir)
6.umferð (4 réttir)
7.umferð (4 réttir)
8.umferð (5 réttir)
9. umferð (4 réttir)
10. umferð (4 réttir)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top