Stórstjarna Györ opnar sig um erfiða endurkomu eftir barnsburð
Attila KISBENEDEK / AFP

Franska landsliðskonan Estelle Nze Minko, leikmaður ungverska stórliðsins Györ, hefur opnað sig um þær áskoranir sem fylgdu því að snúa aftur í atvinnumennsku eftir að hún eignaðist sitt fyrsta barn í mars síðastliðnum.

Nze Minko sneri aftur á völlinn í september en viðurkennir í viðtali við evrópska handknattleikssambandið, EHF, að endurkoman hafi reynst mun erfiðari en hún gerði ráð fyrir, bæði líkamlega og andlega.

„Rétt eftir að ég eignaðist barnið mitt var markmiðið að koma til baka sem betri handboltakona en ég var áður,“ segir Nze Minko í viðtalinu. Hún viðurkennir hins vegar að væntingarnar hafi breyst eftir að hún hóf aftur æfingar og keppni. „Nú, nokkrum vikum síðar, hugsa ég að ef ég verð jafn góð og áður, eða jafnvel aðeins lakari, þá væri ég sátt við það.“

Franska landsliðskonan segir að líkamlegar breytingar á meðgöngunni hafi haft mikil áhrif og að það hafi tekið tíma að venjast breyttum líkama. Andlegi þátturinn hafi einnig verið krefjandi og henni hafi nánast liðið eins og nýjum leikmanni hjá Györ þegar hún sneri aftur, þrátt fyrir að hafa leikið með félaginu um árabil.

Nze Minko segir að stuðningur fjölskyldunnar og félagsins hafi skipt miklu máli í endurkomunni. Hún sé þakklát fyrir að geta sameinað móðurhlutverkið og atvinnumennsku á hæsta stigi, þótt það hafi reynst erfiðara en hún hafði ímyndað sér.

„Ég bjóst eiginlega við því að verða allt önnur manneskja eftir barnsburðinn. En ég held að ég sé nákvæmlega sama konan. Það er bara komin manneskja inn í líf mitt sem ég elska meira en allt annað,“ segir Nze Minko sem hefur um árabil verið ein af bestu handboltakonum heims og er nú aftur farin að leika með Györ í ungversku úrvalsdeildinni og Meistaradeild Evrópu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top