Við erum búnir að hugsa um þennan leik síðan í september
Egill Bjarni Friðjónsson

Það verður sannkallaður nágrannaslagur á Akureyri í kvöld þegar Þór tekur á móti KA í Höllinni klukkan 18:00 í Olís-deild karla. Dagur Gautason, leikmaður KA, segir að leikmenn liðsins hafi beðið eftir tækifærinu til að hefna fyrir tapið gegn Þór í fyrri viðureign liðanna í september. Hann segir að stemningin í þessum leikjum sé engu lík.

„Við í KA erum hrikalega spenntir fyrir sunnudeginum. Þetta eru tveir langstærstu deildarleikirnir á tímabilinu fyrir bæði lið og það er alltaf uppselt og troðfullt á þessa leiki. Ég er ekki viss um að stemningin sem myndast á þessum leikjum finnist annars staðar á landinu,“ sagði Dagur í samtali við Handkastið fyrir leikinn.

Þórsarar höfðu betur í fyrri viðureign liðanna sem fram fór í KA-heimilinu í september. Sá leikur hefur greinilega setið í leikmönnum KA sem eru staðráðnir í að bæta upp fyrir frammistöðuna þegar liðin mætast á nýjan leik í kvöld.

„Við erum búnir að hugsa um þennan leik frá því í september þegar við spiluðum við þá síðast. Sá leikur er búinn að sitja lengi í okkur af því við vorum langt frá okkar besta. Við erum að undirbúa okkur vel og erum staðráðnir í að bæta upp fyrir þann leik.“

Dagur segir að staðan á leikmannahópi KA sé góð þrátt fyrir að einhverjir leikmenn hafi verið að glíma við minniháttar meiðsli eftir síðasta leik. Hann hefur engar áhyggjur af því að það muni hafa áhrif á liðið þegar flautað verður til leiks í kvöld.

„Staðan á hópnum okkar er bara góð. Það hafa einhverjir verið að glíma við smávægilegt hnjask eftir síðasta leik en það gleymist allt á sunnudaginn. Það verða allir klárir í slaginn þegar leikurinn byrjar.“

KA hefur náð í mörg góð úrslit í Olís-deildinni síðan liðin mættust síðast og er í baráttu um sæti í efri hluta deildarinnar. Dagur er heilt yfir sáttur við gengi liðsins en segir að meiri stöðugleika þurfi í frammistöðuna.

„Mér finnst við hafa náð ágætis takti í deildinni síðan þá. Okkur vantar enn þá örlítinn stöðugleika á milli leikja. Við flökkum fullmikið í frammistöðu stundum, en við erum búnir að ná í mörg góð úrslit, sérstaklega á móti mörgum af liðunum í efri hlutanum. Þannig ef við horfum á töfluna held ég að við getum heilt yfir verið þokkalega sáttir.“

Markmið KA-manna fyrir kvöldið eru skýr. Þeir vilja ekki aðeins hefna fyrir tapið í september heldur einnig tryggja sér þriðja sæti deildarinnar þegar keppnin er hálfnuð.

„Markmiðið okkar er því bara að eiga góðan leik á sunnudaginn, hefna fyrir fyrri leikinn og vera í þriðja sæti þegar deildarkeppnin er hálfnuð.“

Dagur segir að lokum að stuðningur KA-fólks geti skipt sköpum í leiknum og hvetur alla Akureyringa til að mæta í Höllina og taka þátt í stemningunni.

„Að lokum vil ég bara hvetja alla Akureyringa, sérstaklega KA-fólk, til að næla sér í miða og mæta á leikinn. Við þurfum á hverjum einasta stuðningsmanni að halda. Leikirnir á milli þessara félaga eru svo miklu meira en bara venjulegir deildarleikir.“

Leikur Þórs og KA hefst klukkan 18:00 í Höllinni á Akureyri í kvöld, þar sem Þórsarar verða á heimavelli.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top