Þýska stórliðið MT Melsungen hefur ákveðið að framlengja ekki samning sinn við lettnesku stórskyttuna Dainis Kristopans sem yfirgefur félagið næsta sumar. Í stað hans hefur Melsungen samið við sænsku hægri skyttuna Erik Persson sem kemur frá Frisch Auf Göppingen. Kristopans, sem er 36 ára gamall og 215 sentímetrar á hæð, hefur leikið með Melsungen frá sumrinu 2023 þegar hann gekk til liðs við félagið frá Paris Saint-Germain. Lettinn hefur verið einn af lykilmönnum liðsins undanfarin ár og átti meðal annars stóran þátt í því þegar Melsungen varð Evrópudeildarmeistari á síðasta tímabili. Kristopans hefur glímt við meiðsli á þessu tímabili og þurfti að gangast undir aðgerð á hné í lok september. Í stað Lettans kemur hinn 28 ára gamli Erik Persson frá Göppingen. Svíinn hefur skrifað undir samning við Melsungen sem gildir til sumarsins 2029 og gengur til liðs við félagið án greiðslu félagaskiptagjalds þegar samningur hans við Göppingen rennur út. Persson hefur leikið í þýsku úrvalsdeildinni frá árinu 2023 þegar hann gekk til liðs við Göppingen frá Eskilstuna Guif í heimalandinu. Hann hefur síðan þá fest sig í sessi sem öflug hægri skytta í deildinni. Þegar félagaskiptin voru tilkynnt hafði hann skorað 350 mörk í 115 mótsleikjum fyrir Göppingen. Persson mun mynda par í hægri skyttustöðunni með Dananum Nikolaj Enderleit sem hefur nýlega framlengt samning sinn við félagið til ársins 2029. Breytingarnar eru hluti af undirbúningi Melsungen fyrir næsta tímabil þegar Jaron Siewert tekur við þjálfun liðsins. Siewert, sem áður stýrði Füchse Berlin, hefur þegar komið að ákvörðuninni um að fá Persson til félagsins. Reynir Þór Stefánsson er leikmaður MT Melsungen og er á sínu öðru ári hjá félaginu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.